Vá hvað maður er hættur að nenna þessu...!! skoðar þetta enginn hvort eð er, hehe.. ætla nú samt að blogga bara smá pínu, hef ekkert betra að gera....!! viðgerðir loksins búnar á heimilinu, komin með þetta glæsilega nýja parket
hefði nú alveg mátt taka styttri tíma, er búið að taka heila 2 mánuði.. djö hvað ég er fegin að það er loksins allt komið í orden.
Hér var svo haldið þetta þrusu Halloween party og auðvitað var skylirði að koma í búningum, hér voru hátt uppí 50 manns ef ekki meira... keyptir voru 60 lítrar af carlsberg, sem sagt tveir 30 ltr kútar
og alveg er ég nú viss um að allavegana 20 ltr hafa lent á gólfinu, hehe.. frekar klístrað og ógeðslegt daginn eftir!!! í lokin fór þetta nú að vísu aðeins úr böndunum, smá af slagsmálum og læti, en annars við hverju býst maður með þetta magn af áfengi
ég allavegana slasaðist á hendi og hef ekki getað unnið í 2 vikur
er að verða geðbiluð að hangsa inni og gera ekki neitt.. alveg hræðilegt!!! en held að ég meigi nú skreppa í vinnu á mánudaginn
Svo er maður náttla byrjaður á jólasaumnum, allir meiga búast við því að fá ekkað home-made í jólagjöf
en já svona er bara tilveran hjá mér í dag, hef ekkert meira um það að segja
Kv. Kitty 
www.myspace.com/themessengersofdeath